Verkefnið felur í sér hönnun, þróun og tæknilega útfærslu á vefnum, ásamt áframhaldandi umbótum á efnisuppsetningu, flokkun, leit, sölu-ferli og samþættingum við önnur kerfi.

Pipp vinnur í nánu samstarfi við Ormsson að forgangsröðun verkefna, greiningu á þörfum, útfærslu nýrra lausna og lagfæringum á núverandi virkni. Áhersla er lögð á að vefurinn sé hraðvirkur, stöðugur, aðgengilegur og vel aðlagaður bæði fyrir farsíma og skjáborð.

Verkefnið fól einnig í sér samþættingu milli Business Central og WooCommerce þannig að gagnaflæði milli kerfanna væri sjálfvirkt og áreiðanlegt. Með þeirri tengingu var tryggt að vörur, birgðastaða og önnur lykilgögn skiluðu sér rétt milli kerfa, þannig að vefsíðan sýndi á hverjum tíma rétta lagerstöðu á vörum og studdi betur við sölu- og rekstrarferla.

Helstu verkefnaþættir geta meðal annars verið:

þróun og viðhald á vefverslun
endurbætur á UX/UI
uppsetning og betrumbætur á efni og síðum
hagræðing á vöruflæði og vörukynningu
samþætting Business Central og WooCommerce
sjálfvirknivæðing gagnaflæðis milli kerfa
trygging réttrar birgðastöðu á vef
SEO, hraða- og frammistöðuumbætur
bilanagreining, prófanir og reglulegt viðhald

Markmiðið er að Ormsson.is styðji sem best við stafræna sölu, vörumerki fyrirtækisins og upplifun viðskiptavina á öllum stigum kaupferlisins.